Milanovic með hreinan meirihluta

Zoran Milanovic á kjörstað í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í dag.
Zoran Milanovic á kjörstað í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í dag. AFP

Zoran Milanovic, sitjandi forseti Króatíu, er með hreinan meirihluta atkvæða í forsetakosningunum þar í landi samkvæmt útgönguspám sem birtar voru um leið og kjörstöðum var lokað í kvöld.

Milanovic er með langflest atkvæði, 51,48%, en Dragan Primorac er annar með 19,29% atkvæða.

Milanovic er vinstrimaður og var áður formaður Jafnaðarmanna­flokks Króa­tíu, sem er í stjórnarandstöðu á þingi Króatíu.

Primorac er hins vegar studdur af íhaldsflokknum HDZ sem er stærsti flokkur landsins og leiðir ríkisstjórn þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert