15 létust í eldsvoða á grænmetismarkaði

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Átta létust og 15 slösuðust í eldsvoða á grænmetismarkaði í Norður–Kína í dag. 

„Hinir slösuðu hafa verið fluttir á sjúkrahús og eru ekki í lífshættu,“ sagði í tilkynningu yfirvalda í Qiaoxi–hverfi í Zhangjiakou–borg, sem er norðvestur af Peking. 

Eldurinn braust út á Liguang–markaði klukkan 8:40 á staðartíma. Slökkvistarfi lauk um klukkan 10. 

Eldsupptök eru ókunn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert