Matthew Alan Livelsberger, sem olli sprengingu í Cybertruck-bifreið fyrir utan Trump-hótel í Las Vegas á nýársdag, féll fyrir eigin hendi rétt fyrir sprenginguna og hafa bréfaskrif hans fyrir sprenginguna veitt innsýn í líf hans.
CNN greinir frá.
Áður hefur verið sagt frá því að Livelsberger sinnti herþjónustu í bandaríska hernum en var í leyfi frá störfum sínum þegar hann olli sprengingunni. Yfirvöld segja að Livelsberger hafi látist af völdum skotsárs á höfði.
Samkvæmt miðlinum greindist Livelsberg með þunglyndi á síðasta ári. Þrátt fyrir það var hann ekki talinn hættulegur sjálfum sér eða öðrum.
Lögregluyfirvöld hafa nú deilt með fjölmiðlum vestanhafs bréfum sem Livelsberger skrifaði dagana fyrir sprenginguna. Þar koma fram áhyggjur hans varðandi framtíð Bandaríkjanna og stefnu landsins, sem hann taldi vera á niðurleið.
Þrátt fyrir það kemur þó fram í bréfunum að hann var dyggur stuðningsmaður Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, og einnig var hann aðdáandi Elon Musk og Robert F. Kennedy Jr.
Í bréfunum ritar Livelsberger einnig að hann þurfi að hreinsa hug sinn vegna þeirra lífa sem hann tók sem hermaður í bandaríska hernum.
Að sögn Spencer Evans, fulltrúa FBI í Las Vegas, er um að ræða hörmulegt sjálfsvíg hermanns sem glímdi við áfallastreituröskun og önnur vandamál.
Þá kemur einnig fram í bréfum Livelsberger að sprengingin væri ekki hryðjuverkaárás heldur vakning fyrir Bandaríkin. Hann ritar að Bandaríkjamenn veiti aðeins sjónarspili og ofbeldi athygli og þurfti því flugelda og sprengingu til að koma skoðunum hans á framfæri.
Í grein CNN er einnig rætt við fyrrum kollega Livelsberger úr hernum og er honum þar meðal annars lýst sem góðhjörtuðum manni sem sá til þess að börn í Afganistan fengju leikföng þegar hann sinnti herþjónustu þar.
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.