Skipuleggja fund: „Hann vill hittast“

Frá þessu greindi hann í gærkvöldi.
Frá þessu greindi hann í gærkvöldi. AFP/Jim Watson/Emmanuel Dunand

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, segir að Vladimír Pútín Rússlandsforseti vilji funda með honum og að verið sé að skipuleggja hvar og hvenær þeir geti hist.

20. janúar tekur Trump við embætti forseta Bandaríkjanna og í kosningabaráttunni lagði hann mikla áherslu á að binda enda á innrásarstríð Rússlands í Úkraínu.

„Hann vill hittast og við erum að koma því í kring,“ sagði Trump í gær á fundi með ríkisstjórum Repúblikanaflokksins á Mar-a-Lago í Flórída.

Selenskí telur að stríðið endi fyrr með Trump

Trump hefur aldrei lagt fram neinar beinar tillögur um vopnahlé eða friðarsamning og hefur oft gagnrýnt þá miklu hernaðaraðstoð sem Bandaríkin hafa veitt Úkraínu, án þess að vita hvert endamarkmiðið sé.

Í nóvember fundaði Volodimír Selenskí Úkraínuforseti með Trump í New York.

„Það er al­veg ljóst að stríðið mun enda fyrr und­ir stefnu þeirra sem munu brátt leiða Hvíta húsið. Það er þeirra nálg­un, þeirra lof­orð til Banda­ríkja­manna,“ sagði Selenskí í sam­tali við úkraínska fjöl­miðil­inn Suspilne í kjölfar fundarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert