Dæmd fyrir svívirðilegt brot

Fíkniefnum var haldið að hópi kvenna og þær misnotaðar.
Fíkniefnum var haldið að hópi kvenna og þær misnotaðar. AFP/Paul Ellis

Hópur innflytjenda frá Rúmeníu hefur í Skotlandi verið fundinn sekur um mansal, kynferðis- og fíkniefnabrot eftir að upp komst um skipulagða glæpastarfsemi þeirra. Er um að ræða fjóra karlmenn og eina konu á aldrinum 34 til 41 árs.

Breskir fréttamiðlar greina frá því að lögreglan í Skotlandi hafi að undanförnu unnið að umfangsmikilli glæparannsókn eftir að grunur um afbrot féll á hópinn.

Í samtali við Sky News lýsir rannsóknarlögreglumaðurinn Scott Carswell fólkinu sem „viðurstyggilegu“. Það hafi nýtt sér bága stöðu ungra kvenna í von um skyndigróða. Áfengi og fíkniefnum hafi meðal annars verið haldið að brotaþolum, sem eru konur af rúmenskum og skoskum uppruna, og þær síðan seldar í vændi. Brotin eru sögð sérstaklega gróf og svívirðileg, en málið hefur vakið talsverða athygli þar í landi.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert