Mun loka landamærunum

Alice Weidel er kanslaraefni þjóðern­is­flokk­sins Alternati­ve für Deutsch­land (AfD). Hún heitir því að loka landamærum Þýskalands komist flokkurinn í ríkisstjórn. Olaf Scholz Þýska­landskansl­ari er kanslaraefni Verka­manna­flokk­sins.

Í lok desember leysti Frank-Walter Stein­meier, for­seti Þýska­lands, upp sam­bandsþingið. Þjóðverj­ar munu því ganga til kosn­inga þann 23. fe­brú­ar.

Alice Weidel á flokksþingi í dag.
Alice Weidel á flokksþingi í dag. AFP/Jens Schlueter

Á flokksþingi AfD í dag var Weidel valin sem kansalarefni flokksins í komandi kosningum. Í ræðu sinni á flokksþingi sagði Weidel að hún myndi loka landamærum landsins kæmist flokkurinn í ríkisstjórn.

„Við erum með svörin. Við erum með plan. Við erum með plan fyrir framtíð Þýskaland sem við munum koma í framkvæmd á fyrstu 100 dögum í ríkisstjórn. Lokum landamærunum algjörlega og vísum á brott þeim sem koma ólöglega til landsins og án pappíra. Sendum skýr skilaboð til heimsins: Landamæri Þýskalands eru lokuð,“ sagði Weidel í ræðu sinni. 

Frá flokksþingi í dag. Á myndinni sést maður halda á …
Frá flokksþingi í dag. Á myndinni sést maður halda á skilti þar sem stendur Alice fyrir Þýskaland. AFP/Jens Schlueter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert