Búa sig undir veðurofsa í LA

Eldarnir eru skæðastir á tveimur svæðum í borginni.
Eldarnir eru skæðastir á tveimur svæðum í borginni. AFP/Apu Gomes

Yfirvöld í Los Angeles-borg búa sig nú undir mikinn veðurofsa sem á eftir að gera slökkviliðsmönnum erfiðara fyrir að slökkva mannskæða gróðurelda sem geisa í og við borgina. 

Veðurspár gera ráð fyrir hvössum vindi í Los Angeles næstu daga. Bandarísk yfirvöld vöruðu við því í gær að vindarnir gætu dreift gróðureldunum lengra inn í íbúðahverfi borgarinnar.

Búist er við að vindhraði nái hámarki á morgun, þriðjudag, en þá getur hann náð allt að 35 m/s. Veðurspár gera ráð fyrir því að vindhraðinn verði mestur á háfjöllum Ventura, sem eru í um 50 kílómetra akstursfjarlægð frá stærstu eldunum. 

Eldarnir geisa á þremur svæðum í borginni. 

Slökkviliðsmenn berjast við gróðureldana á jörðu niðri.
Slökkviliðsmenn berjast við gróðureldana á jörðu niðri. AFP/Josh Edelson

Tekist að slökkva nær allan eldinn á Hurst-svæðinu

Í Palisades-hverfi loga umfangsmestu eldarnir og ná þeir yfir 23.173 hektara landsvæði. Slökkviliðsmenn hafa náð stjórn á 14% eldsins. Á Eaton-svæðinu er eldurinn næststærstur. Hann nær yfir 14.117 hektara og er búið að ná stjórn á um þriðjungi af svæðinu.

Talsvert betur gengur að hemja eldana sem geisa á Hurst-svæðinu en þar nær eldurinn yfir minnsta landsvæðið eða 799 hektara. Slökkviliðsmenn hafa nær alveg náð að slökkva eldana.

Í það minnsta 24 eru látnir og 16 er saknað eftir að gróðureldarnir brutust út fyrir tæpri viku síðan. Búist er við því að tala látinna muni hækka þegar leitar- og björgunarmenn skoða rústirnar á svæðinu með líkhundum. 

Fjöldi húsa hefur brunnið til kaldra kola og tugir þúsunda hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. 

Fjölmörg heimili hafa brunnið til kaldra kola.
Fjölmörg heimili hafa brunnið til kaldra kola. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert