Forsetamynd: Donald Trump brúnvölur

Stuðningsmenn Trumps segja á samfélagsmiðlum að myndin sé grjóthörð. Ljóst …
Stuðningsmenn Trumps segja á samfélagsmiðlum að myndin sé grjóthörð. Ljóst er að hér ekki um hefðbundna forsetamynd að ræða. Ljósmynd/Donald Trump

Ný forsetamynd af Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur vakið talsverða athygli. Myndin var birt í dag og á henni virðist hann setja upp álíka svip og hann gerði þegar tekin var af honum sakborningsmynd í Fulton-fangelsinu í ágúst 2023.

Svokallað aðlögunarteymi, sem sér um embættistöku Trumps, birti myndina af honum ásamt varaforsetamynd af J.D. Vance, verðandi varaforseta Bandaríkjanna.

Báðar ljósmyndirnar sýna repúblikanana í bláum jakkafötum, hvítum skyrtum og með blá bindi. Trump er einnig með bandaríska fánanælu í jakkanum.

Hér má sjá forsetamyndina í fullri hæð.
Hér má sjá forsetamyndina í fullri hæð. Ljósmynd/Donald Trump
Hér má sjá varaforsetamynd J.D. Vance.
Hér má sjá varaforsetamynd J.D. Vance. Ljósmynd/J.D. Vance

Öðruvísi en myndirnar á fyrra kjörtímabili

Ljósmyndin af Trump minnir á sakborningsmyndina sem tekin var af honum í Fulton-fangelsinu í tengslum við ákæru gegn honum um að hann hafi reynt að snúa við niðurstöðum forsetakosninganna árið 2020.

Sakborningsmyndin af Trump.
Sakborningsmyndin af Trump. AFP/Fógetaembætti Fulton-sýslu

Daniel Torok, yfirljósmyndari Trumps, birti myndirnar á samfélagsmiðlum í gær en Trump tekur við embætti forseta á mánudag.

Forsetamyndin af Trump er talsvert öðruvísi en myndirnar sem hann notaði síðast þegar hann var forseti frá 2017 til 2021, eins og sjá má á eftirfarandi mynd.

Trump lét gera tvær forsetamyndir árið 2017. Myndin til vinstri …
Trump lét gera tvær forsetamyndir árið 2017. Myndin til vinstri var sú sem hann notaði fyrst en myndin til hægri er sú sem hann notaði restina af kjörtímabilinu. Samsett mynd/Bókasafn Bandaríkjaþings
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert