Tugir fórust þegar bensínflutningabíll valt

Í það minnsta 60 létust í sprengingunni.
Í það minnsta 60 létust í sprengingunni. Ljósmynd/X

Að minnsta kosti 70 manns létu lífið og nokkrir slösuðust í norðurhluta Nígeríu í dag þegar tankbíll valt og lak bensíni sem olli sprengingu.

Margir íbúar lentu í miklum eldi þegar þeir reyndu að ausa eldsneyti úr bensíntönkum flutningabílsins að sögn Mohammed Bago ríkisstjóra.

Sprengingin sem fylgdi leiddi til dauða margra sem voru að ausa eldsneytinu en aðrir sem voru fjær flutningabílnum hlutu mismikil brunasár.

Uppfært klukkan 16.35:

Áður hafði komið fram að 60 hafi látið lífið, en er nú fjöldinn kominn upp í 70, að sögn talsmanns yfirvalda í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka