Tilfinningaþrungin stund: Hafa endurheimt lífið

Það var tilfinningaþrungin stund þegar Ísraelar fengu í dag afhenta þrjá gísla, sem hafa verið í haldi liðsmanna Hamas á Gasa, í skiptum fyrir 90 palestínska fanga. Það er hluti af vopnahléssamkomulagi sem náðist fyrir helgi sem ætlað er að binda enda á stríðið á Gasa sem staðið hefur yfir í 15 mánuði.

Ísraelsku gíslarnir, þrjár konur, sameinuðust fjölskyldum sínum og voru síðan fluttar á sjúkrahús til skoðunar. Að sögn lækna er líðan þeirra stöðug. Konurnar heita Emily Damari, Romi Gonen og Doron Steinbrecher. Það voru starfsmenn Rauða krossins í Gasaborg sem tóku á móti ísraelsku konunum.

Nokkrum klukkustundum síðar yfirgáfu 90 palestínskir fangar Ofer-fangelsið á Vesturbakkanum þar sem Palestínumönnunum var ákaft fagnað.

Emily Damari (t.h.) sést hér ásamt móður sinni, Amöndu Damari.
Emily Damari (t.h.) sést hér ásamt móður sinni, Amöndu Damari. AFP

Hamingjusöm

Damari segir að hún sé hamingjusamasta stúlka í heiminum. Hún hefur endurheimt lífið að sögn móður hennar. Hún segir enn fremur að líðan Damari sé mun betri en þau þorðu að vona, þrátt fyrir að hún hafi misst tvo fingur.

Damari, sem er bresk-ísraelskur ríkisborgari, var heima hjá sér í Kfar Aza í suðurhluta Ísraels þegar liðsmenn Hamas gerðu árás 7. október fyrir einu og hálfu ári. Hún særðist bæði á fótum og handleggjum og var síðan tekin til fanga.

Fjölskylda Steinbrecher segir að hún hafi lifað af 471 dag í haldi Hamas. Nú hefjist endurhæfing.

Doron Steinbracher (t.h.) fær hér faðmlag frá móður sinni, Simone …
Doron Steinbracher (t.h.) fær hér faðmlag frá móður sinni, Simone Steinbracher. AFP

Ekki allir sem fá gleðifréttir

Fjölmenni kom saman í höfuðborginni Tel Aviv til að fagna lausn gíslanna. Það eru þó ekki allir sem munu fá sömu gleðifréttir.

Greinarhöfundurinn Sima Kadmon fjallar um það í dagblaðinu Yedioth Ahronoth. „Sumir munu snúa til baka í sjúkrarúmum eða í hjólastólum. Aðrir í líkkistum. Sumir munu snúa aftur heim særðir og þurfa nauðsynlega á andlegum stuðningi að halda sem mun koma í veg fyrir fréttaútsendingu,“ skrifaði hún.

Mæðgurnar Merav og Romi Gonen.
Mæðgurnar Merav og Romi Gonen. AFP

Palestínumenn byrjaðir að snúa aftur heim

Í kjölfar vopnahléssamkomulagsins hafa stríðshrjáðir Palestínumenn byrjað að snúa aftur til síns heima.

Í dag sver Donald Trump embættiseið sem 47. forseti Bandaríkjanna. Hann hefur þegar lýst því yfir að það sé honum að þakka að samkomulagið náðist.

Gangi allt eftir mun það taka nokkrar vikur, en ekki mánuði, fyrir samkomulagið að taka formlegt gildi, en hingað til hafa hinar stríðandi fylkingar aðeins samþykkt fyrsta hluta samkomulagsins.

Víða blasir við mikil eyðilegging á Gasa.
Víða blasir við mikil eyðilegging á Gasa. AFP

Ekkert hús, aðeins rústir

Þrátt fyrir að hætt sé við því að átök geti brotist aftur út, þá hafa Palestínumenn streymt aftur heim til sín í gegnum sviðna jörð í Jaballa á norðurhluta Gasa, en það svæði hefur orðið einna verst úti í stríðinu.

„Við erum loksins komin heim. Það er ekkert hús lengur, aðeins rústir, en þetta er heimili okkar,“ sagði hin 43 ára gamla Rana Mohsen.

Mikilvæg mannúðaraðstoð er nú byrjuð að berast inn á Gasa …
Mikilvæg mannúðaraðstoð er nú byrjuð að berast inn á Gasa eftir að samkomulagið náðist. AFP

31 Ísraeli í skiptum fyrir 1.900 Palestínumenn

Það voru samningsmenn frá Katar, Bandaríkjunum og Egyptalandi sem áttu þátt í því að koma á 42 daga vopnahléi, sem er fyrsti hluti samkomulagsins.

Það ætti að duga til að koma nauðsynlegri mannúðaraðstoð til Gasa.

Samkvæmt samkomulaginu munu ísraelskar hersveitir yfirgefa sum svæði í Gasa á meðan unnið verður að varanlegu vopnahléi.

Stefnt er að því að Hamas sleppi 31 fanga, sem voru teknir höndum eftir innrás samtakanna í Ísrael 7. október 2023. Í staðinn munu Ísraelar veita um 1.900 Palestínumönnum lausn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert