Stuðningur við stefnu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í útlendingamálum, utanríkismálum og málefnum trans fólks er mikill í Bandaríkjunum. Helmingur Bandaríkjamanna er þó mótfallinn því að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína og Bandaríkjunum.
Þetta kemur fram í könnun New York Times og Ipsos sem birt var á sunnudag, degi fyrir embættistöku Trumps.
Trump er búinn að skrifa undir fjölda forsetatilskipananna sem lúta að ýmsum hlutum eins og ólöglegum innflytjendum, málefnum trans fólks og orkuöflun.
56% styðja að vísa öllum þeim sem hafa komið ólöglega til Bandaríkjanna brott, en talið er að á bilinu 13-14 milljónir manns séu í landinu ólöglega samkvæmt New York Times.
Stuðningur við brottvísun glæpamanna sem eru ólöglega í landinu er yfir 80% og þá styðja tveir þriðju svarenda brottvísun allra sem komu ólöglega til landsins á síðustu fjórum árum.
Trump hefur á sínum fyrstu dögum fryst komu flóttamanna til Bandaríkjanna í fjóra mánuði, lýst yfir neyðarástandi við landamærin að Mexíkó og undirritað tilmæli til viðeigandi stofnana um að hefja á ný byggingu landamæramúrs við Mexíkó.
Hann lofar mestu brottvísunum í sögu Bandaríkjanna og kveðst ætla byrja á því að vísa úr landi glæpamönnum sem eru ólöglega í landinu.
Ein af forsetatilskipunum Trumps lýtur að því að fella úr gildi bandarískan ríkisborgararétt barna sem fæðast á bandarískri grundu óháð þjóðerni foreldra þeirra.
Ekki er ljóst að þessi tilskipun nái fram að ganga þar sem 14. viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna kveður á um að allar manneskjur sem fæðast í Bandaríkjunum fái sjálfkrafa ríkisborgararétt.
Samkvæmt könnuninni þá vilja 55% Bandaríkjamanna áfram tryggja þennan stjórnarskrárvarða rétt á sama tíma og 41% vilja fella hann úr gildi, líkt og forsetatilskipun Trumps kveður á um.
49% svarenda segja að samfélagið hafi gengið of langt í að reyna aðlagast trans fólki á sama tíma og 21% segja að samfélagið hafi ekki gengið nógu langt.
28% segja ágætt jafnvægi sé komið í málefnum trans fólks.
79% eru mótfallnir því að transkonur fái að keppa á móti líffræðilegum konum (e. biological females) í kvennaíþróttum og 71% eru mótfallnir því að trans börn fái kynþroskabælandi lyf. Trump talaði mikið um þessi mál í kosningabaráttunni.
Trump hefur undirritað forsetatilskipun þar sem m.a. er kveðið á um að kynin skuli vera tvö.
Trump hefur undirritað forsetatilskipanir sem er ætlað að binda enda á aðgerðaáætlanir ríkisins sem ætlað er að stuðla að jöfnuði, fjölbreytileika og inngildingu. Svokölluð DEI-verkefni sem hafa verið mjög umdeild í Bandaríkjunum.
Samkvæmt könnunni þá eru 48% mótfallnir DEI-verkefnum í skólum, háskólum og hjá opinberum stofnunum en 47% styðja þau.
21% segja að þeir séu spenntir fyrir kjörtímabili Trumps og 26% segja að þeir séu bjartsýnir en ekki spenntir. 14% eru svartsýnir á kjörtímabilið en hafa þó ekki áhyggjur. 37% hafa áhyggjur af komandi kjörtímabili.
Margir fylgjast með því hvernig Trump ætlar að beita sér á alþjóðavettvangi en hann hefur almennt talað fyrir því að Bandaríkin blandi sér ekki í of margar deilur.
51% segja að Bandaríkjamenn séu að eyða of miklum fjármunum í stuðningi við Úkraínu á sama tíma og aðeins 17% segja að Bandaríkin séu að eyða of litlum fjármunum.
60% svarenda sögðu að Bandaríkin ættu að huga minna að vandamálum erlendis og einbeita sér frekar að vandamálum heima fyrir.
Trump hefur talað um að hækka tolla á vörur frá Kína og Mexíkó. 50% eru mótfallnir hækkun tolla á þjóðir eins og Kína og Mexíkó á sama tíma og 46% styðja hækkun tolla á þessar þjóðir.