Nú hefur verið staðfest að 76 létu lífið í eldsvoða á vinsælu skíðahóteli í Bolu í Kartalkaya í Tyrklandi í fyrrinótt, en viðbragðsaðilar leita enn líkamsleifa í rústunum. Meðal látinna eru mörg börn og ungmenni. Þar fyrir utan slösuðust 51.
Rannsókn er hafin vegna málsins og níu hafa verið handteknir, þar á meðal eigandi hótelsins. Getgátur hafa verið uppi um hvort hótelið hafi uppfyllt reglur um eldvarnir. BBC greinir frá.
Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti, sem mun heimsækja Bolu í dag, hefur sagt að þeir sem beri ábyrgð á þeirri vanrækslu sem leiddi til eldsvoðans, verði sóttir til saka.
Eldurinn braust út á fjórða tímanum í fyrrinótt og var fljótur að læsa sig í timburklæðningu tólf hæða hótelsins. Eldsupptök eru enn ókunn en talið er að eldurinn hafi kviknað í eldhúsi á fjórðu hæð og breiddist hratt út. 234 gestir voru á hótelinu.
Slökkviliðið þurfti að fara um langan veg og var rúman klukkutíma á leiðinni, en veður tafði einnig fyrir. Um tólf tíma tók að ráða niðurlögum eldsins.
Mikil sorg ríkir í Tyrklandi vegna málsins og er víða flaggað í hálfa stöng, en fyrstu fórnarlömbin verða borin til grafar í dag.