Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón

Frá messunni í gær.
Frá messunni í gær. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti var lítt hrifinn af ummælum sem biskup Washington lét falla í messu sem Trump og fjölskylda hans sótti í gær.

Biskupinn Mariann Edgar Budde biðlaði í gær til Trumps að sýna miskunn. Þá sagði hún forsetann vekja upp hræðslu meða innflytjenda og hinsegin fólks.

Í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social í gær lýsti Trump „þessum svokallaða biskup“ sem „róttækum vinstrisinnuðum Trump-hatara“.

„Hún dró kirkjuna í heim stjórnmálanna með mjög ósmekklegum hætti. Hún var með viðurstyggilegan tón, hvorki sannfærandi né klár.“

Mariann Edgar Budde biskup.
Mariann Edgar Budde biskup. AFP

Lét strax að sér kveða

Trump var vígður inn í embætti á mánudaginn. Strax á fyrsta degi ritaði hann undir urmul forsetatilskipana, m.a. eina sem fellir úr gildi ríkisborgararétt frir þau börn sem fæðast á bandarískri grundu óháð þjóðerni foreldra þeirra.

Í annarri tilskipun ákvað Trump að frysta komu flóttamanna til Bandaríkjanna í fjóra mánuði.

Þá sagði hann að héðan í frá yrðu aðeins tvö kyn viðurkennd, karl og kona.

Ekki góð messa

„Ég biðla til þín að sýna miskun,“ sagði Budde við Trump sem sat á fremsta bekk kirkjunnar ásamt fjölskyldu sinni er biskupinn.

„Mér fannst þetta ekki góð messa,“ sagði Trump að henni lokinni.

„Fyrir utan óviðeigandi yfirlýsingar hennar þá var þetta leiðinleg messa og veitti manni ekki innblástur. Hún er ekki mjög góð í vinnunni sinni. Hún og kirkjan hennar skulda almenningi afsökunarbeiðni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert