Greindist með fuglaflensu í Bretlandi

Smásjármynd sem sýnir fuglaflensu af H5N1-stofni.
Smásjármynd sem sýnir fuglaflensu af H5N1-stofni. AFP

Bresk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensa hefði greinst í manni þar í landi. Þau taka fram að slík smit séu sjaldgæf.

Fram kemur í yfirlýsingu sem heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands (UKHSA) sendi frá sér að maðurinn sem veiktist vinni á bóndabæ þar sem hann var mikið í kringum sýkta fugla. Stofnunin segir að lítil hætta sé á frekari útbreiðslu.

Þá er tekið fram að maðurinn sem veiktist hafi smitast af H5N1-stofni fuglaflensunnar í Vestur-Miðhéruðum Englands. Honum heilsast vel en dvelur nú á smitsjúkdómadeild þar sem hlúð er að honum.

Maðurinn liggur nú á smitsjúkdómadeild sjúkrahúss.
Maðurinn liggur nú á smitsjúkdómadeild sjúkrahúss. AFP

Lítil hætta á frekari útbreiðslu

Smituðu fuglarnir greindust með DI.2-genastofninn sem er annað afbrigði en það sem hefur verið í dreifingu á meðal spendýra og fugla í Bandaríkjunum.

„Það er lítil hætt á að fuglaflensa breiðist út meðal almennings þrátt fyrir þetta staðfesta tilfelli,“ segir Susan Hopkins,

Hingað til hefur ekki verið sýnt fram á að H5N1-stofn fuglaflensunnar geti smitast á milli manna, að því er segir í umfjöllun AFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert