Fyrirtækið Google hefur staðfest að það muni breyta nafni Mexíkóflóa yfir í Ameríkuflóa á miðli sínum Google Maps í Bandaríkjunum.
Mun flóinn enn þá heita Mexíkóflói fyrir notendur miðilsins í Mexíkó og munu notendur utan Bandaríkjanna og Mexíkó sjá bæði nöfnin.
The Guardian greinir frá.
Einnig verður nafnabreyting á miðlinum á hæsta fjalli Norður-Ameríku sem er í Alaska.
Fjallið heitir Denali en notendur Google Maps í Bandaríkjunum munu sjá heitið McKinley-fjall.
Fjallið var kallað McKinley-fjall, eftir William McKinley, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, en heiti þess var formlega breytt í Denali árið 1975 að ósk Alaska.
Þýðir Denali „hátt“ á tungu Kouyukon-frumbyggjanna.
Nafnabreytingarnar koma í kjölfar forsetatilskipunar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem tók við embættinu 20. janúar.
Í yfirlýsingu frá Google segir að það samrýmist langvarandi vinnubrögðum þeirra að beita nafnbreytingum þegar þær hafa verið uppfærðar í opinberri ríkisstjórn.
Munu því nafnabreytingarnar birtast þegar Google Maps-miðillinn verður uppfærður eftir að nöfnin verða uppfærð í landfræðilegu upplýsingakerfi bandarísku ríkisstjórnarinnar.