Myndskeið: Fékk „sálina og lífið til baka“

Þúsundir Palestínumanna hafa snúið aftur til síns heima, til Norður-Gasa, eftir að Ísrael og Hamas-samtökin gerðu með sér samkomulag um lausn sex ísraelskra gísla.

Ísraelsstjórn sagði í gær að átta gíslar, sem hafa verið í haldi á Gasa og til stóð að sleppa í fyrsta fasa vopnahléssamkomulagsins, væru látnir.

Vonir standa til að samkomulagið, sem þykir brothætt, bindi enda á 15 mánaða blóðsúthellingar sem hófust 7. október 2023 þegar liðsmenn Hamas gerðu árás á Ísrael.

Loftmynd sem sýnir þann fjölda sem hélt aftur til síns …
Loftmynd sem sýnir þann fjölda sem hélt aftur til síns heima. AFP

Ísraelar höfðu komið í veg fyrir að Palestínumenn gætu snúið aftur til norðurhluta Gasa þar sem ísraelsk stjórnvöld sökuðu Hamas um að virða ekki vopnahléið.

Talsmaður Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, sagði á sunnudag að Palestínumennirnir mættu komast leiðar sinnar eftir að nýtt samkomulag næðist.

Talsmenn Hamas höfðu sagt að lokunin jafngilti því að vopnahléssamkomulaginu væri rift.

Margir fóru fótgangandi norður með aleiguna og börnin á öxlunum.
Margir fóru fótgangandi norður með aleiguna og börnin á öxlunum. AFP

Sumir héldu á aleigunni

Fjölmenni hefur nú tekið stefnuna norður í gegnum Netzarim, sem áður var lokað, undir vökulu auga ísraelskra hermanna og skriðdreka. Sumir Palestínumenn drógu vagna með dýnum og öðrum nauðsynjum. Aðrir héldu á aleigu sinni.

Í gær sögðu talsmenn Hamas að ríflega 300.000 Palestínumenn hefðu snúið aftur til síns heima.

Palestínumenn sjást hér ferðast með eigur sínar í gegnum Netzarim.
Palestínumenn sjást hér ferðast með eigur sínar í gegnum Netzarim. AFP

Mikil gleði

Mikill fögnuður braust út þegar fólk komst á leiðarenda.

„Velkomin til Gasa“ stóð á fána sem hafði verið reistur yfir ofan moldarveg við húsarústir í Gasaborg.

„Þetta er mesti gleðidagur í lífi mínu,“ sagði Lamees al-Iwady, sem er 22 ára gömul, sem sneri aftur heim til sín eftir að hafa verið á flótta mánuðum saman.

„Mér líður eins og ég hafi fengið sálina mína og lífið til baka,“ bætti hún við. „Við munum endurreisa heimili okkar, jafnvel þótt það verði aðeins með leðju og sandi.“

Áfall að horfa upp á eyðilegginguna

Þrátt fyrir að fagna því að komast aftur heim þá er það öllum mikið áfall að sjá þá gríðarlega miklu eyðileggingu sem hefur átt sér stað á svæðinu.

Talsmenn Hamas segja að þörf sé á um 135.000 tjöldum og tjaldvögnum í Gasaborg og fyrir norðan til að veita fólki húsaskjól.

Þrátt fyrir þetta hafa liðsmenn Hamas lýst heimkomunni sem sigri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert