Norðmaður á fimmtugsaldri situr nú í haldi sænskrar lögreglu í kjölfar þess er lík norskrar konu á sama aldursskeiði fannst í íbúð skammt frá sænska bænum Strömstad á sunnudagsmorgun – algengum viðkomustað Norðmanna í geysivinsælum verslunarferðum þeirra yfir til nágrannaríkisins.
Gerði maðurinn lögreglu sjálfur aðvart og var aðkoman ófögur að sögn Roberts Beckards héraðssaksóknara sem hvort tveggja hefur rætt við norska ríkisútvarpið NRK og dagblaðið VG frá því líkfundurinn varð heyrumkunnur.
„Ekki finnst margt sem er alvarlegra en manndráp,“ segir Beckard við NRK og kveðst munu fara fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Norðmanninum á morgun eða í síðasta lagi á fimmtudaginn. „Ég get ekki rætt nein smáatriði sem snúa að því hvers vegna við grunum manninn, lögregla vinnur nú að því að tryggja sönnunargögn og við höfum lagt hald á ýmsa muni,“ segir héraðssaksóknari enn fremur.
Kveður hann grunaða kannast við að hafa verið valdur að andláti konunnar, en VG hefur það eftir skipuðum verjanda í málinu, Leif Björklund, að skjólstæðingur hans telji sig þó ekki bera sakarábyrgð hvað andlátið snertir. Tilkynnti grunaði í símtali sínu til viðbragðsaðila að konan hefði fengið hjartastopp, en að sögn saksóknara þótti þeim ljóst, við komu á vettvang, að sú skýring mannsins fengi ekki staðist.
Greinir NRK frá því að grunaði sé búsettur í norsku höfuðborginni Ósló og hafi notað íbúðina sem sumardvalarstað. Tengsl hafi verið á milli grunaða og látnu.
Bíður lögregla nú niðurstöðu krufningar áður en hún tjáir sig um dánarorsök konunnar. Áverkar á grunaða eru enn fremur til rannsóknar hjá heilbrigðisstarfsfólki.
Var Björklund verjandi viðstaddur yfirheyrslur yfir skjólstæðingi sínum í dag. Kveður hann Norðmanninn hafa verið samvinnuþýðan við stjórnanda yfirheyrslunnar og veitt lögreglu upplýsingar.
VG ræðir við íbúa í nágrenninu, þar á meðal Per Hjærling sem býr við sjóinn ásamt eiginmanni sínum Kenneth og tíkinni Kösu sem VG tekur fram að sé tíu ára gömul. „Það er óvenjulegt að sjá stórar lögreglubifreiðar hér,“ segir Hjærling við blaðamann og kveðst hafa hugsað með sér „Jahá?“ þegar hann kom auga á bifreiðina ásamt sjúkrabifreið á sunnudaginn. Á svæðinu þrífst að hans sögn lítið og rólegt samfélag nágranna.
Fjöldi Norðmanna á orlofsíbúðir og -bústaði við Bohuslän-ströndina í Svíþjóð, sem er skammt sunnan landamæra Noregs og Svíþjóðar, og sem fyrr segir fara Norðmenn í miklar verslunarferðir til Strömstad og Svinesund vegna mjög hagstæðs verðlags nágrannaríkisins.