Lagður eggvopni á lestarstöð

Tveir eru í haldi lögreglu grunaðir um tilraun til manndráps …
Tveir eru í haldi lögreglu grunaðir um tilraun til manndráps eftir að sextán ára gamall piltur var stunginn á neðanjarðarlestarstöðinni á Romsås í Ósló í gærkvöldi. Ljósmynd/Wikipedia.org/Kjetil Ree

Sextán ára unglingspiltur er alvarlega skaðaður eftir að hann var lagður eggvopni á neðanjarðarlestarstöðinni á Romsås í norsku höfuðborginni Ósló um kvöldmatarleytið í gær og handtók lögregla tvo menn upp úr miðnætti í nótt sem nú hafa formlega fengið stöðu grunaðra í málinu og beinist grunurinn að tilraun til manndráps.

Að sögn Alexanders Østerhaug varðstjóra, sem ræðir við norska ríkisútvarpið NRK, útilokar lögregla ekki að fleiri verði handteknir vegna misgerðarinnar. Bætir varðstjóri því við að ástand fórnarlambsins sé enn alvarlegt.

Unnið á brautarteinum

Kveður lögregla vitni hafa verið að atburðinum og mikla leit þegar hafist að árásarmönnum eftir að viðbragðsaðilar komu á vettvang. Tæknideildarfólk lögreglu kannar nú vettvang og er reiknað með að vinna þess þar standi fram eftir degi.

Slökkvilið er einnig á vettvangi þar sem hluti vinnu tæknideildarfólks lögreglu fer fram á brautarteinum en við slíkar aðstæður gengur slökkvilið fyrst úr skugga um að jarðtenging rafmagns um teinana sé tryggð.

NRK

VG

Nettavisen

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert