Mögulegar samningaviðræður en ekki við Selenskí

Volodimír Selenskí og Vladimír Pútín.
Volodimír Selenskí og Vladimír Pútín. AFP

Vladimír Pútin Rússlandsforseti segir að möguleiki sé til staðar að eiga friðarviðræður við Úkraínu en útilokar að ræða beint við Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, sem hann kallar ólögmætan.

Selenskí brást við ummælum Rússlandsforseta með að segja að Pútín væri hræddur við samningaviðræður og beitti kjánalegum brögðum til að lengja stríðið sem hefur staðið yfir í tæp þrjú ár.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þrýst á báða aðila um að binda endi á stríðsátökin frá því að hann tók við forsetaembættinu þann 20. þessa mánaðar. Trump hefur hótað refsiaðgerðum gegn Rússum á sama tíma og hann hefur haldið því fram að Selenskí sé reiðubúinn í samningaviðræður.

„Í dag staðfesti Pútin enn og aftur að hann er hræddur við samningaviðræður, er hræddur við sterka leiðtoga og gerir allt til að lengja stríðið,“ skrifar Selenskí á samfélagsmiðilinn X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert