Segir áform Trumps grimmdarleg

Miguel Diaz-Canel, forseti Kúbu.
Miguel Diaz-Canel, forseti Kúbu. AFP

Forseti Kúbu, Miguel Diaz-Canel, hefur lýst áformum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, um að senda innflytjendur í nýja fangageymslu í Guantánamo-flóa á Kúbu, sem grimmdarlegum.

Þetta skrifar Diaz-Canel í færslu á X.

Fangageymslan á að halda allt að 30.000 inn­flytj­end­ur sem búa nú ólög­lega í Banda­ríkj­un­um.

Nálægt aðstöðu sem var notuð fyrir pyntingar

Segir Diaz-Canel að fangageymslan verði staðsett á kúbversku svæði sem sé ólöglega hernumið af bandarískum yfirvöldum.

Þá upplýsir hann að innflytjendunum verði haldið nálægt aðstöðu sem Bandaríkin hefðu notað m.a. fyrir pyntingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert