Enginn meðbyr hjá Breivik – aðstæður við afplánun lögmætar

Breivik mætir í réttarsalinn í janúar í fyrra þar sem …
Breivik mætir í réttarsalinn í janúar í fyrra þar sem hann var vitni í sínu eigin máli gegn ríkinu. Héraðsdómur og lögmannsréttur telja aðstæður hans í fangelsinu ekki brot gegn ákvæðum mannréttindasáttmála. Breivik vill áfrýja, en mun Hæstiréttur taka við málinu? AFP/Cornelius Poppe

Lögmannsréttur Borgarþings í Noregi staðfesti í gær einum rómi dóm Héraðsdóms Óslóar frá 15. febrúar í fyrra sem þá sýknaði norska ríkið af öllum kröfum fjöldamorðingjans Anders Behrings Breiviks sem taldi sig afplána við ómannúðlegar aðstæður með vísan til mannréttindasáttmála Evrópu.

Sagði Øystein Storrvik lögmaður Breiviks norska ríkisútvarpinu NRK í gær að skjólstæðingur hans vildi áfrýja niðurstöðu gærdagsins til Hæstaréttar sem er háð því að rétturinn samþykki að taka málið til meðferðar.

Byggði saksókn Breiviks og Storrviks á því að rúmlega þrettán ára seta Breiviks í algjörri einangrun bryti gegn þeim greinum mannréttindasáttmálans sem mæla fyrir um aðstæður fanga við afplánun.

Of hættulegur til heimsókna

Allt frá því Breivik hlaut sinn dóm sumarið 2012 hefur hann setið í klefum innst á fangelsisgöngum án möguleika á umgengni við aðra fanga. Hann sat fyrsta áratuginn í Telemark-fangelsi, en var fluttur yfir í Ringerike-fangelsi árið 2022.

Í núverandi aðstöðu sinni í Ringerike hefur Breivik aðgang að æfingaherbergi, vinnuherbergi, svefnherbergi og heimsóknarými þar sem enn fremur er sjónvarp.

Um árabil naut Breivik heimsókna úr röðum annarra fanga, en nú orðið þykir hann of háskalegur til að umgangast aðra í fangelsinu auk þess sem taldar eru líkur á því að aðrir fangar geti verið honum hættulegir, enda hefur norsk þjóð varla haft annan eins ímugust á nokkrum landa sínum síðan landráðamaðurinn Vidkun Quisling var og hét, í síðari heimsstyrjöldinni. Var Quisling stillt upp fyrir framan aftökusveit við Akershus-kastala í Ósló í október 1945 og endaði þar líf sitt.

Málflutningsmenn dómsmálaráðuneytisins, fyrir hönd norska ríkisins, í máli Breiviks nú voru þau Kristoffer Nerland og Caroline Røkenes sem segja í skriflegri yfirlýsingu til NRK að af Breivik stafi enn hætta og séu þær ströngu öryggiskröfur, er um hann gilda, lögmætar og byggðar á úttektum fagfólks.

NRK

VG

TV2

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert