Íraski aðgerðasinninn og flóttamaðurinn Salwan Momika, sem komst í heimsfréttirnar fyrir að brenna Kóraninn, helgirit múslima, við nokkur tækifæri í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi sumarið 2023, þar á meðal fyrir framan helstu mosku borgarinnar, var í gærkvöldi skotinn til bana á svölum íbúðar í Hovsjö í Södertälje, rúma 30 kílómetra suðvestur af Stokkhólmi.
Hefur lögregla handtekið fimm manns sem grunaðir eru um að tengjast verknaðinum, en Momika, sem setið hefur undir líflátshótunum hvort tveggja í Svíþjóð og á alþjóðavísu, var í beinni útsendingu á samfélagsmiðlinum TikTok þegar hann varð fyrir skotunum svo víg hans fór ekki hljótt.
Jafnvel Frans páfi fordæmdi Kóranbrennur Momika sumarið 2023, en gríðarlega umdeilt varð þegar sænska lögreglan veitti mótmælendum leyfi til að brenna Kóraninn við mótmæli sem Salwan nokkur Najem skipulagði við sænska þingið í Stokkhólmi 31. júlí 2023.
Fregnir af leyfisveitingu sænsku lögreglunnar fóru sem eldur í sinu um múslimaríki og kveiktu gríðarleg mótmæli, meðal annars gerðu mörg hundruð manns atlögu að sænska sendiráðinu í írösku höfuðborginni Bagdad 20. júlí og brenndu bygginguna. Starfsfólk sendiráðsins slapp með naumindum óskaddað.
Írösk stjórnvöld slitu stjórnmálatengsl sín við Svíþjóð og vísuðu sænska sendiherranum úr landi, en Tobias Billström, þáverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, sakaði þau á móti um að vanrækja skyldur sínar samkvæmt Vínarsáttmálanum um stjórnmálasamband og gegna ekki þeirri grunnskyldu móttökuríkis að gæta öryggis sendierindreka annars ríkis.
Er á hólminn var komið brenndi Momika Kóraninn hins vegar aldrei 31. júlí 2023, en það gerði hann hins vegar við önnur tækifæri.
„Hann verður brenndur oftsinnis þar til þið bannið hann,“ sagði Najem, skipuleggjandi mótmælanna, í samtali við sænska dagblaðið Expressen á sínum tíma. Najem hafði þá tekið þátt í tvennum fyrri mótmælum í sænsku höfuðborginni ásamt Momika, fóru önnur þeirra fram utan við helstu mosku bæjarins en hin við sendiráð Íraks.
Þeir félagar voru yfirlýstir andstæðingar íslams og kröfðust þess að Kóraninn yrði bannaður í Svíþjóð.
Momika brenndi blaðsíður úr Kóraninum fyrir utan áðurnefnda mosku í Stokkhólmi við mótmæli í júní en eins og mbl.is fjallaði um í júlí þetta ár, 2023, komst sænskur stjórnsýsludómstóll að þeirri niðurstöðu þá um vorið að synjun lögreglu um leyfi til Kóranbrennu gengi í berhögg við sænsk lög. Á þetta féllst millidómsstigið kammarrätten í kjölfar áfrýjunar. Voru dómarnir kveðnir upp eftir að mótmælandi bar synjun lögreglu undir stjórnsýsludómstólinn.
Síðar var Momika ákærður fyrir hatursorðræðu í garð múslima við mótmælin og var dómsuppkvaðning í máli hans á dagskrá héraðsdómstóls í Stokkhólmi í dag, en var aflýst með þeim ummælum dómara að rétturinn kvæði ekki upp dóm yfir látnum manni.
Sænska öryggislögreglan Säpo rannsakar víg Momika nú ásamt Stokkhólmslögreglunni, enda talið varða þjóðaröryggi, og tók sænski forsætisráðherrann Ulf Kristersson málið upp á blaðamannafundi um skálmöldina í undirheimum Svíþjóðar í dag.
„Ég get ábyrgst að þjóðaröryggisaðilar hafa málið á sínum snærum þar sem hér er augljóslega um að ræða hættu á að erlend ríki tengist málinu,“ sagði forsætisráðherra.
Í Danmörku hringdi öryggislögreglan PET í annan þekktan Kóranbrennumann, hinn dansk-sænska Rasmus Paludan, snemma í morgun og spurði hann hvort hann hefði lesið fréttir. Frá þessu greinir Paludan í samtali við danska dagblaðið Berlingske. Mótmælaskipuleggjandinn Najem sagði í dag við sænska ríkisútvarpið SVT að hann hefði fengið beinskeytt skilaboð á samfélagsmiðlum: „Þú ert næstur.“
Momika dvaldi í Svíþjóð í kjölfar þess að hafa fengið eins árs framlengingu á dvalarleyfi sínu. Í mars í fyrra sótti hann um hæli í Noregi sem hafnaði umsókn hans og sendi hann til baka til Svíþjóðar, en Dyflinnarreglugerðin bannar Svíum hins vegar að senda hann til Íraks þar sem ekkert bíður hans nema dauðinn.
Salwan Sabah Matthew Momika var fæddur í bænum Qaraqosh í Norður-Írak 23. júní 1986 og hlaut kaþólskt uppeldi undir merkjum sýrlensku kaþólsku kirkjunnar. Í borgarastyrjöldinni árin 2006 til 2008, þegar hryðjuverkasamtökin Ríki íslams ofsóttu kristna íbúa landsins, gekk Momika til liðs við Assýríska föðurlandsflokkinn og starfaði sem öryggisvörður við höfuðstöðvar flokksins í Mósúl.
Í kjölfar þess er dómstóll þar fann hann sekan um að hafa orðið mannsbani í bílslysi árið 2012 og dæmdi hann til þriggja ára fangelsis í Badush, skammt frá Mósúl, lagði hann á flótta og hvarf, en dúkkar næst upp árið 2014 sem félagi í hermdarverkasamtökunum PMF (Popular Mobilization Forces) sem háðu hildina við Ríki íslams.
Birtust myndskeið á samfélagsmiðlum er sýndu Momika í herklæðum og þá undir merkjum hreyfingarinnar „Herfylki anda guðs sonar Jesú sonar Maríu“ (arab. Kataib Rouh Allah Issa Ibn Miriam) sem var eins konar trúarleg undirdeild PMF, en auk þessa stofnaði Momika skæruliðahreyfingarnar Lýðræðissamband Sýrlands og Fálka Sýrlandshers árið 2014.
Í kjölfar valdatafls við þáverandi leiðtoga Babýlonshreyfingarinnar, Rayan al-Kildani, árið 2017, þar sem Momika fór halloka, lagði hann á flótta frá Írak og komst til Þýskalands með Schengen-vegabréfsáritun. Hann sótti svo um pólitískt hæli í Svíþjóð í apríl 2018 og hrærðist í sænska kerfinu sem íraskur flóttamaður þar til honum var veitt þriggja ára landvistarleyfi í apríl 2021 sem átti að renna út í apríl í fyrra.
Var honum neitað um ótímabundið dvalarleyfi og sænskan ríkisborgararétt fyrir þær sakir að ljúga til um tengsl sín við skæruliðahreyfinguna Imam Ali Brigades á upphaflegri hælisumsókn sinni. Kvaðst hann tilheyra hinum stjórnmálalega armi hennar, ekki hinum herskáa. Sænsk innflytjendayfirvöld gátu hins vegar sannað hið gagnstæða á hann.
Fljótlega tók að gusta um íraska flóttamanninn á sænskri grundu. Momika sætti rannsókn fyrir ósannsögli sína um Imam Ali-hreyfinguna og hótaði auk þess manni, sem hann deildi íbúð með, og otaði eggvopni að honum. Fyrir það hlaut hann dóm og var gert að sinna samfélagsþjónustu.
Í kjölfar mótmæla með Kóranbrennum sumarið 2023, sem vægast sagt höfðu grafalvarlegar afleiðingar fyrir Svíþjóð á alþjóðavettvangi á tíma sem landið var að ganga frá aðild sinni að Atlantshafsbandalaginu NATO, reyndu Svíar að vísa honum úr landi og til Íraks sem reyndist, sem fyrr segir, ekki tækt í krafti Dyflinnarreglugerðarinnar.
Í marslok í fyrra hélt hann til Noregs til að sækja um hæli þar en var gerður afturreka og gengu um tíma gróusögur á samfélagsmiðlum um að henn hefði verið myrtur í Noregi. Því neitaði norsk lögregla alfarið.
Var Salwan Sabah Matthew Momika sendur aftur til Svíþjóðar 11. apríl í fyrravor og réttaði héraðsdómur í máli hans vegna hatursorðræðu. Annars fór ekki miklum sögum af Írakanum umdeilda þar til fjöldi manns á TikTok horfði upp á hann skotinn til bana í Södertälje í útjaðri Stokkhólms undir miðnætti í gærkvöldi.