Ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af

Umfangsmiklar aðgerðir hafa staðið yfir í allan dag.
Umfangsmiklar aðgerðir hafa staðið yfir í allan dag. AFP

Fjölmargir bátar og kafarar hafa þrætt Potomac-ána í Washington í Bandaríkjunum í leit að fólki á lífi eftir árekstur farþegaþotu og herþyrlu í nótt.

Vélarnar voru á flugi þegar áreksturinn varð, en alls voru 64 um borð í þotunni.

Mikill viðbúnaður er á svæðinu og fjölmenni tekur þátt í aðgerðum á vettvangi. Búið er að finna 30 lík að því er segir í bandarískum fjölmiðlum. Talið er afar ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af.

Þyrla sést hér á flugi yfir ána Potomac í dag.
Þyrla sést hér á flugi yfir ána Potomac í dag. AFP

Eins lengi og þörf krefur

„Við verðum eins lengi og þörf krefur,“ segir Muriel Bowser, borgarstjóri Washington, við fréttamenn. 

Bandaríska skautasambandið segir að nokkrir íþróttamenn, þjálfarar og embættismenn hafi verið um borð í vélinni. Að sögn yfirvalda í Mosku voru rússnesku hjónin Evgení Shishkóva og Vadí Naumov um borð, en þau unnu heimsmeistaratitil í listhlaupi á skautum árið 1994.

Farþegaþotan, sem var af gerðinni Bombardier, flaug undir merkjum dótturfélags American Airlines. Sextíu farþegar voru um borð og fjórir í áhöfn vélarinnar. Þotan var að koma inn til lendingar á Reagan-alþjóðaflugvellinum um kl. 21 að staðartíma í gærkvöldi (kl. 2 í nótt að íslenskum tíma) þegar slysið varð. Vélin var að koma frá Wichita í Kansas.

Þyrlan í æfingaflugi

Talsmenn Bandaríkjahers segja að þyrlan hafi verið af gerðinni Black Hawk. Um æfingaflug var að ræða en þrír voru um borð í þyrlunni.

Báðar vélarnar höfnuðu í ánni.

Búið er að loka Reagan-flugvelli á meðan aðgerðirnar standa yfir.
Búið er að loka Reagan-flugvelli á meðan aðgerðirnar standa yfir. AFP

Spurðu ítrekað hvort þær sæju ekki vélina

Hljóðupptökur úr flugturninum hafa verið spilaðar opinberlega þar sem flugumferðarstjórar heyrast ítrekað spyrja þyrflugmennina hvort þeir sjái ekki þotuna. Rétt áður en áreksturinn varð biðja flugumferðarstjórarnir þyrluna um að fljúga fyrir aftan vélina.

„Ég sá bara eldhnött og svo var hún farin,“ heyrist einn flugumferðarstjóri segja við kollega sinn eftir að samskiptin rofnuðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert