Pelicot yfirheyrður vegna óupplýstra mála

Dominique Pelicot á leið í yfirheyslu í dómshúsi í dag …
Dominique Pelicot á leið í yfirheyslu í dómshúsi í dag í fylgd lögreglu. AFP/Dimitar Dilkoff

Dominique Pelicot, sem dæmdur var í tuttugu ára fangelsi í desember fyrir að hafa byrlað þáver­andi eig­in­konu sinni ólyfjan, nauðgað henni og leyft tug­um manna að gera slíkt hið sama í rúm­an ára­tug, var nýlega yfirheyrður vegna rannsóknar tveggja óupplýstra mála frá tíunda áratugnum.

Annað málið varðar nauðgun og manndráp í París árið 1991 og hitt varðar tilraun til nauðgunar í Seine-et-Marne-héraði árið 1999.

Pelicot játaði sök í síðarnefnda málinu en neitaði aðild að manndrápinu og nauðguninni í París.

Beatrice Zavarro lögfræðingur Pelicot sagði rannsóknina á manndrápinu hafa staðið yfir síðan í október 2022 og að Pelicot hefði þegar verið yfirheyrður í október 2023.

Lögfræðingurinn Beatrice Zavarro segir rannsóknina, sem tileinkuð er óupplýstum málum, …
Lögfræðingurinn Beatrice Zavarro segir rannsóknina, sem tileinkuð er óupplýstum málum, hafa staðið yfir síðan í október 2022. AFP/Bertrand Guay

Líkindi í málunum tveimur

Um nauðgunartilraunina frá árinu 1999 sagði Pelicot: „Það var sannarlega ég. Ég tók hana úr stuttermabolnum, skónum og buxunum en ég gerði ekki neitt.“

Hann sagðist þó vera alsaklaus í máli Sophie Narme, fasteignasalans sem var nauðgað og myrt í París árið 1991.

„Ég hef ekkert með það mál að gera,“ sagði hann, þrátt fyrir líkindi í málunum en bæði fórnarlömbin voru 23 ára fasteignasalar. Báðar konurnar voru heimsóttar af manni sem villti á sér heimildir til að skoða hjá þeim íbúð. Þá voru konurnar tvær einnig afklæddar að neðan á sama hátt.

Sterk lykt var af svæfingarlyfinu eter, sem notað er í skurðaðgerðum, á vettvangi glæpsins gegn Narme, sama efni og notað var til að ráðast á ungu konuna árið 1999.

„Ég var með litla flösku af eter í bílnum og stutt band,“ sagði hann um nauðgunartilraunina.

„Hélt að þetta gæti hafa verið dóttir mín“

Aðspurður hvers vegna hann flúði vettvang svaraði hann: „Ég var með meinloku og hélt að þetta gæti hafa verið dóttir mín.“

Caroline Darian dóttir Pelicot er í dag 46 ára en hefur á þeim tíma verið rúmlega tvítug.

Eftir að hafa séð myndir af meðvitundarlausum líkama sínum, klæddum nærfötum sem hún þekkti ekki, telur Darian föður sinn hafa byrlað sér ólyfjan og nauðgað sér. Myndirnar fundust meðal ítarlegra skráa sem faðir hennar hélt um glæpi sína.

Sagði hún nýlega að Pelicot „ætti að deyja í fangelsi“ þar sem hann væri „hættulegur maður“.

Skissa af Dom­in­ique Pelicot í rétt­ar­höld­un­um.
Skissa af Dom­in­ique Pelicot í rétt­ar­höld­un­um. AFP/Benoit Peyrucq

Vekur ótta um aðra glæpi

Rúm 30 ár eru síðan fyrsti glæpurinn, sem Pelicot neitar sök fyrir, var framinn. 

Hefur sú staðreynd vakið ótta um að Pelicot gæti hafa framið fleiri kynferðisglæpi á tímabilinu.

Gisele Pelicot, fyrrverandi eiginkona hans, hefur verið hyllt sem hetja fyrir hugrekki sitt og reisn í rúmlega þriggja mánaða réttarhöldum. Þeim lauk í desember og voru allir sakborningar, sem voru 51 talsins, dæmdir sekir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert