Gekk inn í blóðbað

Halden í Noregi, rúma 100 kílómetra suður af Ósló. Rúmlega …
Halden í Noregi, rúma 100 kílómetra suður af Ósló. Rúmlega fertugur maður var myrtur þar á heimili sínu í apríl í fyrra og liggur ákæra nú fyrir. Ljósmynd/Wikipedia.org/Zairon

Íbúar norska bæjarins Halden, um 120 kílómetra suður af Ósló, voru slegnir óhug þegar íbúi þar í bænum, hinn 42 ára gamli Sven Erik Næss, var myrtur á hrottafenginn hátt á sínu eigin heimili með sveðju 20. apríl í fyrra.

Nágrannar tilkynntu um mikinn hávaða frá íbúð Næss og er lögregla kom á vettvang lá húsráðandi í andaslitrunum á gólfinu. Lífi hans varð ekki borgið þrátt fyrir fyrstu hjálp lögreglunnar. Næss var úrskurðaður látinn á staðnum. Hann var ekki einn þegar lögregla ruddist inn í íbúð hans.

Á vettvangi reyndist enn fremur þrítugur maður staddur og bar sá væga áverka. Var hann þegar handtekinn og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Rökstuddi héraðsdómari upphaflegan gæsluvarðhaldsúrskurð með því að grunur léki á að hann hefði gerst sekur um sérstaklega hrottalegar aðfarir við manndráp.

Biðin verið aðstandendum þungbær

Ákæra við Héraðsdóm Søndre Østfold hefur nú litið dagsins ljós og hefst aðalmeðferð málsins innan skamms.

Vitni sem komu á vettvang skömmu á undan lögreglu, þeir Tom Skaar og André Andersen Lundsveen, góðir vinir myrta, lýstu aðkomunni sem óhugnanlegri í samtali við norska ríkisútvarpið NRK á sínum tíma. „Þegar ég opnaði dyrnar gekk ég inn í blóðbað,“ sagði Lundsveen af aðkomunni.

Hans Henrik Pettersen er réttargæslulögmaður fjölskyldu Næss og kveður hann langa bið eftir ákæru hafa reynst aðstandendunum sem myllusteinn um háls. „Biðin hefur verið þeim þungbær og þau lengir eftir niðurstöðu til að styðjast við,“ segir Pettersen við NRK.

Að sögn Kari Hangeland Buvik héraðssaksóknara voru Næss heitinn og ákærði nágrannar, þeir bjuggu í sama hverfinu. „Hversu vel þeir þekktust fram að því er til drápsins kom verður tekið fyrir í réttinum,“ segir Hangeland í skriflegu svari til NRK og bætir því við að samkvæmt ákæru snúist málið um að maður hafi verið myrtur á geigvænlegan hátt og teljist mjög alvarlegt.

NRK

NRK-II (fundu vin sinn í blóðpolli)

VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert