Hvorki Danir né Bandaríkjamenn að grínast

Lars Løkke Rasmus­sen, utanríkisráðherra Danmerkur, sést hér í spjallþætti sem …
Lars Løkke Rasmus­sen, utanríkisráðherra Danmerkur, sést hér í spjallþætti sem var sýndur nýverið þar sem framtíð Grænlands var rædd. AFP

Utanríkisráðherra Danmerkur segir að það sé ekki í þágu Grænlendinga að Bandaríkin taki yfir eyjuna. Ráðherrann lét ummælin falla eftir að starfsbróðir hans í Bandaríkjunum sagði að Trump Bandaríkjaforseti væri ekkert að grínast þegar hann talaði um að kaupa Grænland.

„Það er heldur ekkert grín þegar við segjum að Grænland muni að sjálfsögðu ekki verða bandarísk eign,“ sagði Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, í samtali við danska ríkisútvarpið.

„Þetta þjónar ekki hagsmunum danska konungsríkisins,“ bætti hann við. Danmörk, Grænland og Færeyjar eru hluti af danska konungsveldinu.

Grænland ekki til sölu

„Og ekki heldur í þágu Grænlands, svo það sé alveg á hreinu. Setjum það því til hliðar,“ sagði ráðherrann.

Hann ítrekaði að Grænland tilheyrði Grænlendingum og sé ekki til sölu.

„Það er ekki aðeins það sem segir í sjálfstjórnarlögunum heldur einnig í alþjóðalögum. Þú getur einfaldlega ekki selt svona lagað, það er liðin tíð,“ bætti Rasmussen við.

Trump vil rífa upp tékkheftið.
Trump vil rífa upp tékkheftið. AFP

Seldu Bandaríkjamönnum Vestur-Indíur fyrir rúmri öld

„Árið 1917 seldum við dönsku Vestur-Indíur [sem eru í dag bandarísku Jómfrúareyjar] án þess að spyrja íbúana þar hvað þeir vildu. Við getum ekki gert slíkt í nútímasamfélagi og við munum ekki gera það.“

Frá því Trump sór embættiseið 20. janúar hefur hann ítrekað talað um og haldið því fram að Bandaríkin muni á endanum taka yfir Grænland.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Trump vera fúlasta alvara.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Trump vera fúlasta alvara. AFP

Trump ekkert að grínast

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gerði í gær lítið úr þeim fullyrðingum Trumps að hann væri reiðubúinn að beita hervaldi til að ná landinu undir sig. „Þetta er aftur á móti ekkert spaug,“ bætti hann við.

Rubio segir að Trump hafi sagt það sem hann hyggist gera. Það er að kaupa Grænland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert