Skemmdarverk voru nýverið unnin á leiði Jean-Marie Le Pen, stofnanda frönsku Þjóðfylkingarinnar, að sögn fyrrum samstarfsmanna hans í flokknum.
Le Pen lést í upphafi árs, 96 ára að aldri. Le Pen var öfgahægrimaður í frönskum stjórnmálum en ferill hans var markaður af rasisma og gyðingahatri. Hann var faðir Marine Le Pen sem tók við stjórnartaumunum af föður sínum eftir að hann settist í helgan stein.
Marie Caroline Le Pen, önnur dóttir Jean-Marie, birti mynd þar sem sést að krossinn á leiði Le Pen hefur verið mölbrotinn. Le Pen hvílir í fjölskyldugrafreit ásamt foreldrum sínum.
Jordan Bardella, núverandi leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, segir á samfélagsmiðlinum X að hann sé orðlaus yfir skemmdarverkunum og segist vonast til þess að skemmdarvargarnir verði handteknir og refsað harkalega.
Marine Le Pen, sem tók við stjórnartaumunum í frönsku Þjóðfylkingunni af föður sínum árið 2011, rak föður sinn úr flokknum árið 2015 en þau sættust seinna meir og hefur hún síðar sagt að hún muni aldrei fyrirgefa sér fyrir að hafa rekið föður sinn úr frönsku Þjóðfylkingunni.