Fimm létust í sjálfsmorðsprengjuárás

Meðal þeirra látnu eru liðsmenn öryggisveita talibana.
Meðal þeirra látnu eru liðsmenn öryggisveita talibana. AFP

Fimm létust og sjö særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp fyrir utan banka í Afganistan.

Árásin beindist að fólki í biðröð sem beið eftir að sækja laun sín í banka í borginni Kunduz, höfuðborg Kunduz-héraðs.

Jumadin Khaksar, talsmaður lögreglunnar í Kunduz-héraði, segir að óbreyttir borgarar, embættismenn og liðsmenn öryggissveita talibana séu meðal þeirra sem hafi látist í sprengingunni.

Í mars á síðasta ári drap sjálfsmorðssprengjumaður að minnsta kosti þrjá þegar hann sprengdi sprengju fyrir utan banka í borginni Kandahar í suðurhluta landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert