Varar við því að treysta Pútín

Það stefnir í að Trump og Pútín muni funda á …
Það stefnir í að Trump og Pútín muni funda á árinu. AFP/Gavriil Grigorov

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti varar við því að treysta orðum Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta um að hann vilji frið.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Pútín áttu í 90 mínútna símtali á miðvikudag og í kjölfar þess kom fram að leiðtogarnir stefndu að fundi til þess að hefja viðræður um að binda enda á innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Enn fremur sagði Trump að Pútín vildi frið og að „ég held að hann myndi segja mér ef svo væri ekki“.

Á samfélagsmiðlum sagði Selenskí í kjölfar símtals við Póllandsforseta að hann hefði „varað þjóðarleiðtoga við því að treysta fullyrðingum Pútíns um að Rússar væru tilbúnir að binda enda á stríðið“.

Trump tók í gær samt sem áður skýrt fram að Úkraína myndi taka þátt í friðarviðræðum. Á fundi aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í gær sögðu Evrópuþjóðirnar að þær væru mótfallnar því að friðarsamningi yrði þvingað upp á Úkraínu. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert