Segir tolla Trumps „ósamvinnuþýða ákvörðun“

Eric Lombard, fjármálaráðherra Frakklands, segir einu lausnina fyrir ESB vera …
Eric Lombard, fjármálaráðherra Frakklands, segir einu lausnina fyrir ESB vera að hækka tolla á bandarískar vörur. AFP/Alain Jocard

Eric Lomb­ard, fjár­málaráðherra Frakk­lands, seg­ir tolla Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta á bílainn­flutn­ing „mjög slæm­ar frétt­ir og ósam­vinnuþýða ákvörðun“, sem gefi Evr­ópu­sam­band­inu engra annarra kosta völ en að gjalda líku líkt.

Greint var frá því í gær að Trump ætli að leggja var­an­lega 25% tolla á alla inn­flutta bíla til að styðja við inn­lenda bíla­fram­leiðslu Banda­ríkj­anna. Þetta gæti reynst högg fyr­ir evr­ópska bíla­fram­leiðslu, en einnig banda­ríska. Toll­arn­ir taka gildi 2. apríl og ná til allra bíla sem ekki eru fram­leidd­ir á banda­rískri grundu.

„Fjand­skap­ur­inn er að aukast,“ sagði Lomb­ard í út­varps­viðtali.

„Eina lausn­in fyr­ir Evr­ópu­sam­bandið verður að hækka tolla á banda­rísk­ar vör­ur til að bregðast við þessu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert