Fimm ára bandarískur drengur kom með poka af marjúana með sér í skólann og sáldraði því yfir matinn hjá félaga sínum þegar starfsmaður skarst í leikinn, að því er lögregla greindi frá.
Fíkniefnin voru gerð upptæk áður en drengurinn hafði tækifæri til að gæða sér á matnum og grasinu í mötuneytinu í Gratigny-grunnskólanum í Miami í Flórída.
Lögregla segir óljóst hvort drengurinn hafi haft vitneskju um hvað var í raun í pokanum sem hann var með meðferðis en hann hafi þó reynt að fela pokann þegar starfsmaðurinn gekk að honum.
Talsmaður almenningsskólanna í Miami-Dade segir að vera kunni að drengurinn hafi sagt að í pokanum væri kjarrmenta (oregano).
Lögregla og barnaverndaryfirvöld eru að kanna heimilisaðstæður drengsins.