Tveir létust í skotárás á pósthúsi í Bandaríkjunum

Tveir létust og tveir særðust þegar maður skaut af byssu í pósthúsi í Santa Barbara í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gærmorgun. Ekki er mikið vitað um málið að svo stöddu en slökkviliðsstjóri í Santa Barbara greindi sjónvarpsstöðinni KCAL í Los Angeles frá málinu í gær. Pósthúsið er á móti pósthúsinu og sagði slökkviliðsstjórinn að fólk hefði hlaupið frá pósthúsinu og yfir götuna til að tilkynna um skotárásina.

Ekki er vitað um ástæðu þess að maðurinn hleypti af skotum í pósthúsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert