Pantaði leikjatölvu en fékk fimm milljónir í staðinn

Unga drengnum hefur eflaust brugðið í brún þegar hann sá …
Unga drengnum hefur eflaust brugðið í brún þegar hann sá að í kassanum var engin leikjatölva heldur rúmar 65.000 evrur. Reuters

Breska lögreglan leitar nú að réttmætum eiganda 65.400 evra (sem samsvarar um fimm og hálfri milljón kr.) sem voru fyrir mistök send unglingi sem hafði pantað sér Playstation 2 leikjatölvu, að andvirði 11.000 kr., í gegnum uppboðsvefinn eBay.

Peningarnir voru í kassa sem var sendur á heimili drengsins í Aylsham í Norfolk í mars sl., en leikjatölvuna var hvergi að sjá, segir á vef BBC.

Foreldrar drengsins höfðu samband við lögreglu og ekki leið á löngu þar til rannsóknarlögreglumenn voru mættir á staðinn. Þeir töldu seðlana og lögðu hald á þá á meðan málið er í rannsókn.

Dómari hefur veitt lögreglunni í Norfolk frest fram í september til að geyma peningana þar málið kemur á borð dómstóla á ný.

Ef enginn vitjar evranna þá er mögulegt að fjölskyldan geti óskað eftir því að fá að halda peningunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert