Ólympíukyndilhlaupið hófst í Jakarta í Indónesíu í morgun fyrir luktum dyrum á íþróttaleikvangi í borginni að ósk kínverskra yfirvalda. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar fyrir utan leikvanginn, en fyrr í morgun höfðu um 100 mótmælendur safnast saman fyrir framan leikvanginn. Meira en 5000 lögreglumenn voru sendir á vettvang.
Fauz Bowo, borgarstjóri Jakarta, opnaði athöfnina við mikinn fögnuð þúsunda áhorfenda sem var sérstaklega boðið að vera viðstatt á kyndilhlaupinu. Rétt eftir að hlaupið hófst slokknaði aftur á móti á kyndlinum og þurfti að kveikja í honum aftur.