Lítilli flugvél var nauðlent á veginum heim að Bessastöðum skömmu eftir klukkan níu í kvöld og hefur heimkeyrslunni heim að forsetasetrinu verið lokað. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir en ekki munu þó hafa orðið slys á fólki. Tveir menn voru um borð í vélinni. Lögreglan og Rannsóknarnefnd flugslysa unnu að rannsókn óhappsins.