Timburhús, sem flutt var eftir Vesturlandsvegi á palli vörubifreiðar um klukkan 21 í kvöld, rakst upp undir Höfðabakkabrúna og hrundi við það af palli bifreiðarinnar. Engin slys urðu á fólki en umferð um Vesturlandsveg tafðist nokkuð af þessum sökum í kvöld.