Lögreglan á Egilsstöðum fékk í morgun tilkynningu um að vöruflutningabíll hefði oltið á þjóðvegi 1 í Múlanum svonefnda í Jökuldal. Ekki er talið að ökumaðurinn sem var einn í bílnum hafi slasast.
Menn frá næsta bæ fóru ökumanninum til aðstoðar en illfært er um sveitir og flestir fjallvegir ófærir. Víða má sjá yfirgefna bíla sem ökumenn hafa gefist upp við að koma á leiðarenda.