Harður árekstur varð á Reykjanesbraut á Vogaheiði á fjórða tímanum í dag. Skullu þar saman fólksbíll og vörubifreið.
Aðeins bílstjórar voru í bílunum og var annar þeirra fluttur undir læknishendur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík, en meiðsli hans eru óljós enn sem komið er en þeir eru ekki taldir í lífshættu.
Hvasst var á slysstaðnum og eru ástæður slysins raktar til þess en ökumaður vöruflutningabílsins mun hafa misst stjórn á bílnum þegar vindhviða skall á honum.