Patrick Lawler, 23 ára húsasmiður í Denver í Colorado í Bandaríkjunum, sýnir fjögurra tommu nagla sem numinn var úr höfði hans á föstudaginn. Naglinn fór upp í gegnum góminn á Lawler og staðnæmdist eins og myndirnar sýna, án þess að Lawler gerði sér grein fyrir hvað gerst hafði, er hann skaut sig óafvitandi með naglabyssu þar sem hann var við vinnu sína.
Slysið átti sér stað sjötta janúar og Lawler varð ekki var við neitt nema það sem hann taldi vera smávegis tannpínu og lítilsháttar sjóntruflanir. Þegar verkjalyf og kæling slógu ekki á verkina fór Lawler til tannlæknis, sem fann naglann.