Vill alþjóðlegan skatt til að fjármagna baráttuna gegn alnæmi

Jacques Chirac Frakklandsforseti.
Jacques Chirac Frakklandsforseti.

Jacques Chirac Frakklandsforseti leggur til að komið verði á alþjóðlegum skatti í tilraunaskyni til að hjálpa til við að fjármagna baráttuna gegn alnæmi. Sagði hann þetta er hann ávarpaði heimsviðskiptaráðstefnuna í Davos í dag.

Hann frestaði fyrirhugaðri ferð sinni á ráðstefnuna vegna veðurs en ávarpaði ráðstefnuna á myndsímafundi. Þótti of áhættusamt að láta forsetann ferðast í þyrlu vegna slæms veðurs á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert