Neita því að Jóhannes Páll páfi II sé látinn

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og Gianfranco Fini aðstoðarforsætisráðherra voru við …
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og Gianfranco Fini aðstoðarforsætisráðherra voru við messu þar sem beðið var fyrir páfa í dag. AP

Talsmaður Páfagarðs vísaði fyrir stundu á bug óstaðfestum fréttum af því að Jóhannes Páll páfi II væri látinn en ítalska fréttastofan ADN Kronos sagði frá því nú á sjöunda tímanum, að heilalínurit, sem mælir heilastarfsemi páfa hefði nú í kvöld sýnt að heili hans væri hættur að starfa.

Joaquin Navarro-Valls, talsmaður Páfagarðs, sagði grátandi fyrr í dag að páfi væri andstuttur og að hjarta hans og nýru störfuðu ekki lengur með eðlilegum hætti. Þá greindi ítalska APCom fréttastofan frá því síðdegis að páfi væri meðvitundarlaus en Páfagarður bar það til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert