Skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela útvarpsklukku

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 1 mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela útvarpsvekjaraklukku, að verðmæti 990 krónur, í verslun Rúmfatalagersins á Akureyri.

Fram kemur í dómnum, að maðurinn játaði brot sitt. Hann hafði fyrir réttu ári fengið 10 þúsund króna sekt fyrir annan þjófnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert