One Tree Hill stjörnur skildar að borði og sæng

Chad Michael Murray.
Chad Michael Murray. Reuters

Chad Michael Murray og Sophia Bush, sem bæði leika í þáttunum One Tree Hill , eru skilin að skiptum, eftir aðeins fimm mánaða hjónaband. Parið, sem kynntist þegar það lék persónurnar Lucas Scott og Brooke Davis í hinum gríðarlega vinsælu þáttum, ákvað að skilja þegar í ljós kom að hjónabandið gekk ekki upp. „Það tekur mig sárt að tilkynna að ég og Sophia erum að skilja. Þetta er mjög erfiður tími fyrir mig,“ sagði Murray við fréttamenn.

„Þetta eru erfiðar og óheppilegar aðstæður. Ég er ánægð með að málið leysist fyrr en síðar,“ sagði Bush. Murray og Bush giftust í rómantískri athöfn í Santa Monica í apríl, en Murray bað Bush í Ástralíu í maí á síðasta ári, þar sem hann var við tökur á kvikmyndinni House of Wax.

„Hún er fullkomin. Hún veitir mér innblástur og hún hrósar mér mjög mikið,“ sagði Murray skömmu eftir að þau giftust. „Við horfum á fótbolta um helgar og höldum lífi okkar utan fjölmiðlanna,“ sagði Murray, á meðan allt lék í lyndi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes