Lögreglan í Reykjavík handtók mann, sem farið hafði inn í ókunnuga íbúð í Breiðholti um sexleytið í morgun, afklæðst og lagst allsnakinn upp í rúm þriggja ára stúlkubarns. Fimm ára systir stúlkunnar varð mannsins vör þegar hann kom inn í íbúðina. Að sögn lögreglunnar var maðurinn ölvaður.
Móðir stúlkunnar hringdi í lögregluna þegar maðurinn kom inn í íbúðina. Þegar hún kom á staðinn nokkrum mínútum síðar lá maðurinn í rúminu. Taldi hann sig hafa farið í ranga íbúð en hann sagðist vera búsettur í íbúðinni við hliðina á þeirri sem hann fór inn í. Ekki er vitað hvernig maðurinn komst inn í íbúðina, að sögn lögreglu.
Maðurinn gistir nú fangageymslur lögreglunnar.