Fótsporin í snjónum rakin heim til þjófsins

Lögreglan á Ísafirði fékk tilkynningu um það á laugardagsmorgun að brotist hafi verið inn í verslunina Krílið í bænum. Þegar lögreglumenn og eigandi búðarinnar komu á vettvang var þjófurinn á bak og burt en þar sem nýfallin mjöll var yfir öllu voru sporin rakin frá Krílinu að húsi því sem hann var gestkomandi í.

Lögreglan segir, að þjófurinn hafi farið viljugur mjög með lögreglu á lögreglustöð, þar sem hann svaf úr sér áfengisvímuna. Hann gekk síðan frá málum sínum skilmerkilega og iðraðist sáran gjörða sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka