Forsætisráðuneytið hefur haft forgöngu um samningu frumvarps um réttarstöðu samkynhneigðra en þar kemur m.a. fram að skilyrði fyrir stofnun staðfestrar samvistar verða rýmkuð þannig að ekki verði lengur krafist fastrar búsetu á Íslandi þegar íslenskir ríkisborgarar eiga í hlut. Þá geta samkynhneigð pör fengið óvígða sambúð skráða í þjóðskrá.
Þetta kynnti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Forsætisráðuneytið hafði um það náið samráð við dómsmálaráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, fjármálaráðuneytið og Hagstofuna að því er varðar Þjóðskrá.
Meðal meginefna frumvarpsins auk þess sem greint hefur verið frá hér að ofan er eftirfarandi:
Lagaákvæðum á fjölmörgum sviðum verður breytt til þess að ljóst sé að óvígð sambúð samkynhneigðra sé lögð að jöfnu við óvígða sambúð gagnkynhneigðra, sbr. 2. – 13. gr. frumvarpsins. „Þar með eru skapaðar forsendur fyrir því að samkynhneigðir og gagnkynhneigðir njóti sömu réttinda varðandi almannatryggingar, lífeyrisréttindi, skattalega meðferð tekna og eigna, skipti dánarbúa o.fl.,“ segir í minniblaði frá forsætisráðuneytinu.
Þá verður heimild samkynhneigðra para til að ættleiða börn sú sama og gagnkynhneigðra para, sbr. 16. gr. frumvarpsins. Áfram verður metið hverju sinni út frá hagsmunum barnsins hvort leyfi er veitt til ættleiðingar.
„Kona í sambúð eða staðfestri samvist með annarri konu öðlast heimild til að gangast undir tæknifrjóvgun með gjafasæði líkt og á við um gagnkynhneigð pör, sbr. 17. gr. frumvarpsins. Móðirin og maki hennar munu hafa sömu lagalegu skyldur og sömu lagalegu réttindi gagnvart barninu hvað varðar til dæmis forsjá og framfærslu, sbr. 22.-29. gr. frumvarpsins. Áfram verður metið hverju sinni út frá hagsmunum hins ófædda barns hvort leyfi er veitt til tæknifrjóvgunar.“
Þá verða tekin af tvímæli um að það falli undir markmið laga um töku fæðingar- og foreldraorlofs að auðvelda báðum samkynhneigðum foreldrum að vera samvistum við barn sitt, sbr. 32. gr. frumvarpsins.