Fullyrt að Harry Potter deyi í síðustu bókinni

JK Rowling ásamt leikurum í nýjustu Harry Potter kvikmyndinni.
JK Rowling ásamt leikurum í nýjustu Harry Potter kvikmyndinni. AP

Fregnir herma að JK Rowling, höfundur bókanna um Harry Potter, sé búin að fá sig fullsadda af söguhetjunni og í síðustu bókinni endi galdarastrákurinn lífdaga sína. Bandaríski leikarinn Jim Dale, sem les bækurnar inn á hljóðsnældur, segir að Rowling hafi fyrir skömmu játað að í sjöundu bókinni, sem hún er nú að skrifa, ljúki sögu Harrys Potters.

Dale greindi ekki frá því hvernig Harry safnist til feðranna. Sjálf hefur Rowling aldrei viljað segja margt um framtíð Harrys og félaga hans. Þegar hún var nýlega spurð hvort hann verði einhverntíma fullorðinn svaraði hún: „Þið verðið að bíða og sjá hvort hann lifir nógu lengi til að komast á fullorðinsár.“

Daniel Radcliffe, sem leikur Harry í kvikmyndunum, hefur einnig trú á að strákurinn muni deyja. „Ég held að það geti verið að hann verði myrtur í síðustu bókinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þig langar svo að njóta athygli vinnufélaga þinna að þú ert reiðubúinn að leggja ýmislegt á þig. Hlustaðu á röddina sem heldur aftur að þér og bíddu fram yfir helgi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Jill Mansell
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Colleen Hoover
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þig langar svo að njóta athygli vinnufélaga þinna að þú ert reiðubúinn að leggja ýmislegt á þig. Hlustaðu á röddina sem heldur aftur að þér og bíddu fram yfir helgi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Jill Mansell
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Colleen Hoover
5
Sofie Sarenbrant