Kona í Perth í Ástralíu stakk unnusta sinn með skærum vegna þess að hann spilaði lagi Elvis Presleys „Burning Love“, hvað eftir annað á afmælisdegi „Konungsins“.
Lögregla greindi frá þessu í dag.
Maðurinn var með stungusár á höfði, baki og fótleggjum og var fluttur á sjúkrahús í bænum Northam í Vestur-Ástralíu í gærkvöldi. Hann fékk að fara heim að lokinni aðhlynningu.
Unnusta hans hefur verið ákærð fyrir líkamsárás.