Harma myndbirtingar DV

Aðstandendur Jóns Þórs Ólafssonar, sem myrtur var í El Salvador um síðustu helgi, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem harmaðar eru ósmekklegar og tilgangslausar myndbirtingar DV í morgun. Segjast ættingjarnir hafa frétt af fyrirhugaðri myndbirtingu í gærkvöldi og reynt að fá yfirmenn blaðsins til að hætta við þær en án árangurs.

Á myndunum, sem blaðið birti, sjást lögreglumenn rannsaka vettvanginn þar sem lík Jóns Þórs og konu fundust.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

    Aðstandendur Jóns Þórs Ólafssonar heitins harma ósmekklegar og tilgangslausar myndbirtingar DV í morgun þar sem fjallað var áfram um hið hörmulega atvik er átti sér stað í El Salvador um helgina. Í andlátsfregn og fréttayfirlýsingu sem send var út á mánudag voru fjölmiðlar lengstra orða beðnir um að sýna nærgætni í umfjöllun sinni. Fóru aðrir fjölmiðlar landsins að þeim tilmælum og skal það þakkað sérstaklega.

    Ættingjar Jóns Þórs fengu fregnir af fyrirhugaðri myndbirtingu í gærkvöldi og fóru þeir á ritstjórnarskrifstofu DV í þeim tilgangi að reyna að fá ritstjóra til að falla frá birtingu myndanna. Var allt gert til þess að fá nýja ritstjóra hins „breytta blaðs“ til þess að láta af myndbirtingu þessari og getgátum í fréttaflutningi. Ættingjar ræddu við fréttastjóra og ritstjóra í tvo tíma en allt kom fyrir ekki.

    Jón Þór lætur eftir sig tvö börn, 6 og 9 ára gömul, sem nú þegar eiga um nógu sárt að binda. Hinu ógeðfellda blaði sem nærist á hörmungum og sorg annarra er að sjálfsögðu haldið frá börnunum en þau vaxa úr grasi og eins er óvíst með öllu að vinir, jafnaldrar og skólafélagar kunni að fara með svo viðkvæmar upplýsingar og myndbirtingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert