Ekkert hefur enn spurst til Péturs Þorvarðarsonar

Pétur Þorvarðarson.
Pétur Þorvarðarson. mbl.is/

Ekkert hefur spurst til Péturs Þorvarðarsonar 17 ára pilts sem hefur verið saknað frá því í fyrrinótt. Engar vísbendingar hafa borist um hvar Pétur sé að finna. Björgunarsveitir hafa leitað í allan dag á Grímsstöðum á Fjöllum og þær leita enn. Veðurskilyrði til leitar eru góð og það verður leitað í alla nótt á svæðinu. Lögreglan á Húsavík hvetur alla þá sem hafa orðið varir við Pétur að hafa samband við sig í síma 464-1303.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert